Fotbolti.net
31.03.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Atli Jónasson í Hauka á láni (Staðfest)

Atli ver skalla í leik gegn Þrótti í fyrra.

Atli ver skalla í leik gegn Þrótti í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Haukar hafa fengið markvörðinn Atla Jónasson á láni frá KR og lék hann sinn fyrsta leik með liðinu gegn Þrótti í Lengjubikarnum í gærkvöldi.
Atli var í láni hjá Reyni Sangerði síðastliðið sumar og lék alla leiki liðsins bæði í 1.deildinni og í VISA-bikarnum.

Þessi tvítugi leikmaður er uppalinn hjá KR og lék hann alla yngri flokkana með liðinu.

Atli á einn U21 árs landsleik að baki en hann hefur einnig leikið tíu leiki með U19 ára landsliðinu og átta með U17.

Hjá Haukum mun hann berjast um markvarðarstöðuna við Amir Mehica en hann hefur varið mark liðsins undanfarin ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.