31.03.08 - 15:46
Hörður Snævar Jónsson
Henrik Bødker sem lék með ÍBV til Hattar (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Höttur á Egilstöðum hefur fengið danska markvörðinn, Henrik Bødker til liðs við sig. Þetta staðfesti Henrik í samtali við Fótbolta.net nú í dag. Hann sagði einnig að hann hefði hafnað tilboði frá liði í 1 deildinni.
Henrik sem er 26 ára gamall lékk með ÍBV síðari hluta síðasta sumars og sýndi oft á tíðum frábæra takta í marki liðsins.
Henrik var á mála Fremad Amager í heimalandi sínu áður en að hann fór til ÍBV en hann framlengdi ekki samning sinn við liðið..
Hann lék einnig fjóra leiki með AGF í dönsku úrvalsdeildinni á sínum tíma auk þess sem hann hefur verið á mála hjá bæði FC Aarhus og Lyngby BK á ferlinum.
Þessi sterki markvörður lék með U-16 , U-17, U-18 og U-20 ára landsliði Dana á sínum tíma.
Höttur hefur verið að leita af markverði frá því um áramót þegar Óliver Bjarki Ingvarsson sleit krossbönd í hné.