Fotbolti.net
31.03.10 - 16:40
Magnús Már Einarsson

Quincy Owusu-Abeyie frá Portsmouth til Katar (Staðfest)

Quincy Owusu-Abeyie frá Portsmouth til Katar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Quincy Owusu-Abeyie hefur yfirgefið Portsmouth og gengið til liðs við Al Sadd í Katar.
Þessi 23 ára gamli framherji kom til Portsmouth á láni frá Spartak Moskvu í janúar síðastliðnum.

Spartak bað Portsmouth um að fá Owusu-Abeyie fyrr til baka úr láni til að hægt væri að selja hann til Katar.

Portsmouth samþykkti þetta og talið er að félagið hafi fengið 250 þúsund pund fyrir að leyfa Owusu-Abeyie að fara strax.

Al Sadd borgaði fjórar milljónir punda fyrir Owusu-Abeyie en leikmaðurinn mun fá 65 þúsund pund í vikulaun (um 12,5 milljónir íslenskar) í Katar og hann ætti því ekki að hafa fjárhagslegar áhyggjur á næstunni.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.