Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 31. mars 2021 11:00
Magnús Már Einarsson
Solskjær hætti við að skoða leikmann út af hárgreiðslu
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, segist hafa hætt við að skoða leikmann sem hann hafði áhuga á eftir að hann sá hárgreiðslu sem hann mætti með í leik.

Um er að ræða leikmann sem Solskjær ætlaði að skoða þegar hann var þjálfari Molde í Noregi.

Solskjær segir frá þessari sögu í viðtali við Sky Sports.

„Ég fór einu sinni að skoða leikmann og þegar hann kom úr búningsklefanum inn á völl var hann með hanakamb. Þetta var þegar ég var í Noregi," sagði Solskjær.

„Ég sagði við njósnarann minn: "Förum heim, ég hef ekki áhuga." Þetta var mjög stutt njósnaferð."
Athugasemdir
banner
banner
banner