Gana er búið að reka Otto Addo úr starfi sem þjálfari landsliðsins 72 dögum fyrir HM í sumar.
Addo er rekinn eftir 2-1 tap gegn Þýskalandi í vináttulandsleik í gær sem kom á eftir 5-1 tapi gegn Austurríki á föstudag. Gana hefur tapaði fjórum leikum í röð og tókst ekki að komast í lokakeppni Afríkumótsins í vetur.

Addo er fimmtugur og fæddur í Þýskalandi. Hann spilaði allan sinn feril í Þýskalandi og spilaði fimmtán landsleiki. Hann tók við landsliðsþjálfarastarfinu í annað sinn í mars 2024.
Gana verður í riðli með Panama, Englandi og Króatíu á HM. Antoine Semenyo og Mohammed Kudus eru stærstu nöfn liðsins.
Athugasemdir