Sigurður Pétur Stefánsson er genginn í raðir Ægis og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Sigurður Pétur skrifar undir samning sem gildir út árið 2027.
Sigurður Pétur kemur frá Kormáki/Hvöt en hann var fyrirliði liðsins. Hann er miðjumaður sem fæddur er 2003 og hefur einnig spilað með Tindastól á sínum ferli.
Hann skoraði tvö mörk á síðasta tímabili, bæði í Fótbolti.net bikarnum. Annað þeirra var sérstaklega glæsilegt og kom í sigri gegn Magna á Grenivík. Hann var á bekknum í liði ársins í 2. deild í fyrra eftir gott tímabil.

Ægir vann 2. deildina í fyrra og verður í Lengjudeildinni í sumar. Næsti leikur liðsins verðru gegn Árbæ á sunnudag í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Ægir
Komnir
Alfredo Ivan Arguello Sanabria frá Selfossi
Harley Willard frá Selfossi
Sigurður Pétur Stefánsson frá Kormáki/Hvöt
Sigurpáll Sören Ingólfsson frá KR á láni
Markús Máni Jónsson frá Víði
Kristinn Ásgeir Þorbergsson frá Árborg
Nikola Kristinn Stojanovic frá Dalvík/Reyni
Benedikt Þór Viðarsson frá Gróttu
Ómar Castaldo Einarsson frá Reyni S.
Farnir
Ivan Rodrigo Moran Blanco til Gíbraltar
Aron Fannar Hreinsson í Fjölni
Bilal Kamal
Jón Jökull Þráinsson
Elvar Orri Sigurbjörnsson í Selfoss (var á láni)
Guðmundur Stefánsson í Selfoss (var á láni)
Samningslausir
Dimitrije Cokic
Kristján Daði Runólfsson
Athugasemdir