Fotbolti.net
31.05.06 - 12:21
Magnús Már Einarsson

Aguero, Seitaridis og Costina til Atletico (Staðfest)

Aguero er farinn til Spánar.

Aguero er farinn til Spánar.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska liðið Atletico Madrid keypti þrjá nýja leikmenn í gær og þar ber helst að nefan argentínska framherjann Sergio Aguero sem er talinn vera einn sá allra efnilegasti í heiminum í dag.
Aguero kemur til Atletico frá Independiente og segja spænskir fjölmiðlar að kaupverðið séu tuttugu millójinr evra sem væri félagsmet hjá Atletico. Hinn 17 ára gamli Aguero gerði sex ára samning við Atletico en hann og Lionel Messi leikmaður Barcelona eru talidir vera björtustu vonirnar í Argentínu.

Aguero var nálægt því að komast í landsliðshóp Argentínu fyrir HM í sumar en Diego Maradona sagði í sjónvarpsviðtali á Spáni í gær að hann teldi leikmaninn vera jafn góðan og Messi. ,,Sú staðreynd að fólk hefur ekki séð mikið af honum í Evrópu þýðir að hann hefur ekki fengið þá athygli sem Messi hefur fengið en Aguero er jafn góður," sagði Maradona.

Atletico keypti einnig gríska bakvörðinn Georgios Seitaridis og portúgalska miðjumanninn Costinha frá Dynamo Moscow í gær. Seitaridis sem var í liði Grikkja sem sigraði EM 2004 gerði fjögurra ára samning við spænska liðið en Costinha sem vann Meistaradeildina með Porto á sínum tíma gerði tveggja ára samning.

Atletico setur markið hátt á næstu leiktíð eftir að hafa endað í tíunda sæti á þessari leiktíð. Liðið hefur ráðið Javier Aguirre sem þjálfara bætt Jose Maria Amorrortu í þjálfaraliðið og ráðið Jesus Garcia Pitarch sem yfirmann íþróttamála. Þá hefur liðið einnig keypt portúgalska varnarmanninn Ze Castro og vinstri bakvörðinn Mariano Pernia frá Getafe.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.