Fotbolti.net
31.05.06 - 22:02
Hafliði Breiðfjörð

Andriy Shevchenko til Chelsea (Staðfest)

Andriy Shevchenko til Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko er genginn í raðir Chelsea en gengið var frá samningum þessa efnis í kvöld. Kaupverðið er talið vera í kringum 30 milljónir punda. Shevchenko sem er 29 ára gamall skrifaði undir fjögurra ára samning við Chelsea í kvöld eftir að hafa komist að samkomulagi um kaup og kjör og undirgengist læknisskoðun.
,,Ég er hérna vegna áskorunarinnar og spennunar í úrvalsdeildinnni," sagði Shevchenko sem er fyrirliði landsliðs Úkraínu.

Þar sem nákvæmt kaupverð hefur ekki verið gefið upp er ekki enn ljóst hvort hann verði dýrasti leikmaður Bretlands, en Man Utd greiddi Leeds 30 milljónir punda fyrir Rio Ferdinand árið 2002. Þetta er hinsvegar pottþétt dýrasti leikmaður Chelsea, toppar kaupverð Michael Essien upp á 24,5 milljónir punda árið 2005.

,,Ég er að fara frá einu stóru félagi til annars og geng í lið meistara," sagði Shevchenko. ,,Þetta er rétta stundin til að ganga til liðs vði fótboltafélag og ég held að ég hafi komið hingað á fullkomnum tíma."

,,Meistaradeildin verður að vera raunhæft markmið á næstu leiktíð en þetta snýst ekki bara um Meistaradeildina. Chelsea gerir atlögu að þriðja deildartitlinum líka og mér líkar hugarfar félagsins að vilja vinna alla leiki sem þeir spila."

,,Ég hef fylst vel með ferli Herra Mourinho undanfarin ár og hef verið verulega heillaður af því hvernig hann stjórnar. Hann tekur liðið framyfir einstaklinginn og þannig tel ég að frábær lið séu sköpuð."

,,Ef það hefði verið peninganna vegna sem ég kom hingað, þá hefði ég líklega heldur verið áfram hjá Milan. Ég er ánægður með að Chelsea náði að ganga frá öllu fyrir Heimsmeistaramótið. Ég get farið til Þýskalands stoltur af því að vera Chelsa leikmaður."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.