31.05.07 - 21:25
Magnús Már Einarsson
Einar Örn aftur í Leikni frá Keflavík (Staðfest)

Einar Örn í leik í fyrstu umferð Landsbankadeildarinnar með Keflavík gegn KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leiknir úr fyrstu deild karla hefur fengið liðsstyrk en liðið hefur fengið sóknarmanninn Einar Örn Einarsson aftur frá Keflavík. Einar Örn sem er uppalinn hjá Leikni fór frá félaginu síðastliðið haust og gerði þriggja ára samning Keflvíkinga. Hann hefur núna fengið sig lausan undan þeim samningi og gengið aftur til liðs við Leikni.
,,Það eru persónulegar ástæður sem urðu til þess að ég breytti til, ég er ekkert ósáttur eða neitt slíkt," sagði Einar við Fótbolta.net í kvöld.
Einar sem er 23 ára gamall var í byrjunarliði Keflvíkinga gegn HK í Landsbankadeildinni um síðustu helgi og hefur hann komið við sögu í þremur leikjum með liðinu í sumar. Hann segir gaman að vera kominn aftur í Leikni.
,,Auðvitað er gaman að koma hingað aftur, maður hefur sterkar tilfinningar til félagsins og er búinn að spila hérna síðan maður var fimm ára polli. Mig hlakkar mikið til að takast á við þetta verkefni sem framundan er með Leikni," bætti Einar Örn við í samtali við Fótbolta.net.
Einar Örn eða Buxi eins og hann er kallaður hjá Leikni hefur skorað 64 mörk í 138 mótsleikjum fyrir félagið en hann ætti að vera orðinn löglegur með liðinu þegar það mætir ÍBV í næstu viku.

Heimild: Heimasíða Leiknis