Fotbolti.net
31.05.08 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Fabio Liverani til Palermo (Staðfest)

Fabio Liverani í leik gegn Roma

Fabio Liverani í leik gegn Roma

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski reynslujaxlinn Fabio Liverani er gengin í raðir Palermo sem spilar í Seríu A á Ítalíu. Hann kemur til liðsins frá Fiorentina sem hann hefur leikið með síðustu tvö ár.
Liverani, sem er 32 ára gamall miðjumaður gerði þriggja ára samning við Palermo og er kaupverðið ekki ljóst að svo stöddu. Hann er kominn á gamlar slóðir, en hann spilaði með unglingaliði Palermo frá árunum 1994-1995.

Hann var einn af lykilmönnum í liði Fiorentina sem tryggði liðinu þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Hann hefur spilað 3 landsleiki fyrir hönd Ítalíu, en ekki unnið til neinna stórverðlauna.

Þetta er annar leikmaður Palermo í sumar, en þeir fengu Antonio Nocerino, frá Juventus sem part af kaupum Juventus á brasilíska framherjanum Amauri, sem kom frá Palermo.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.