31.05.08 - 14:53
Brynjar Ingi Erluson
Stevan Jovetic til Fiorentina (Staðfest)

Stevan Jovetic og Theo Walcott í baráttu

Mynd: Getty Images

Ítalska Seríu A félagið Fiorentina hefur fest kaup á Svartfellingnum Stevan Jovetic, sem spilar með Partizan í Serbíu.
Jovetic, sem er 18 ára sóknarsinnaður miðjumaður kemur til félagsins á 8 milljónir evra, en tilkynnt verður um lengd samningsins þegar Jovetic verður kynntur sem leikmaður félagsins þann 3.júní næstkomandi.
Hann hefur verið lykilmaður í liði Partizan og var fyrir stuttu útnefndur fyrirliði liðsins. Hann skoraði 19 mörk í 65 leikjum fyrir félagið.
Hann hefur spilað tvo landsleiki með Svartfjallalandi, og sá fyrsti var gegn Ungverjum þegar hann var aðeins 17 ára gamall í mars á síðasta ári. Þá er hann einnig fyrirliði U-21 árs liðsins.

Heimild: Heimasíða Fiorentina