31.05.08 - 23:03
Andri Fannar Stefánsson
Gianluca Zambrotta til AC Milan (Staðfest)
Snýr aftur í ítölsku deildina

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
AC Milan hafa staðfest kaupin á hinum knáa bakverði Gianluca Zambrotta frá Barcelona en þessi ítalski landsliðsmaður kom til Barcelona árið 2006 frá Juventus.
Hinn 31 árs gamli Zambrotta hafði verið í umræðunni sem líkleg kaup hjá Milan í fáeinar vikur og nú hefur samkomulag náðst við spænska liðið.
Ítalska stórliðið hefur staðfest kaupin á opinberu heimasíðu félagsins en þrátt fyrir það er ekkert gefið upp um kaupverð eða lengd samnings Zambrotta.
Zambrotta er nú í óða önn með ítalska landsliðinu í undirbúningi fyrir EM í Austurríki og Sviss sem hefst eftir viku.
Milan urðu nauðsynlega að styrkja sig í bakvarðarstöðunni eftir að hafa losað hina gamalreyndu Brasilíumenn, Cafu og Serginho, þegar tímabilinu lauk.
Félagið hefur einnig opinberað áhuga sinn á tveimur öðrum leikmönnum Barcelona, þeim Ronaldinho og Samuel Eto'o. Greinilegt er að það er hugur í mönnum hjá Milan þar sem þeir náðu ekki að komast í Meistaradeildina á næsta ári og verða að koma til baka.

Heimild: Sky