Fotbolti.net
31.05.11 - 17:36
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Antonio Conte tekur við Juventus (Staðfest)

Antonio Conte tekur við Juventus (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Antonio Conte, fyrrum miðjumaður Juventus, hefur verið ráðinn þjálfari liðsins.

Conte stýrði Siena á nýliðnu tímabili en hann hefur núna skrifað undir tveggja ára samning við Juventus.
Juventus endaði í sjöunda sæti í ítölsku A-deildinni á síðustu leiktíð og í kjölfarið fékk Luigi Del Neri að taka pokann sinn fyrr í mánuðinum.

Conte á núna að reyna að snúa gengi liðsins til betri vegar en hann vann fjórtán titla sem leikmaður með Juventus á sínum tíma.

„Þetta er eins og að snúa heim,\" sagði Conte á blaðamannafundi í dag.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.