Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 13:30
Brynjar Ingi Erluson
Ajax staðfestir ráðningu Heitinga
Mynd: AJax
John Heitinga hefur verið ráðinn nýr þjálfari Ajax í Hollandi en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag.

Heitinga var aðstoðarmaður Arne Slot hjá Liverpool er liðið varð Englandsmeistari á tímabilinu en félagið gaf Heitinga leyfi til að fara í viðræður við Ajax á dögunum.

Francesco Farioli hætti með liðið eftir að honum mistókst að gera það að deildarmeisturum.

Viðræðurnar gengu hratt fyrir sig og var Heitinga tilkynntur sem nýr þjálfari liðsins í dag.

Samningur hans gildir til 2027 og verður Marcel Keizer aðstoðarmaður hans.

Þetta er í annað sinn sem Heitinga stýrir aðalliðinu en hann var bráðabirgðaþjálfari liðsins í nokkra mánuði árið 2023 áður en hann hélt til Englands.


Athugasemdir
banner
banner
banner