Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 11:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sparta að kaupa Nökkva Þey
Mynd: Sparta Rotterdam
Sparta Rotterdam er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að ganga frá kaupum á íslenska sóknarmanninum Nökkva Þey Þórissyni. Nökkvi Þeyr var seinni hlutann á nýliðnu tímabili á láni hjá Spörtu frá bandaríska félaginu St. Louis City.

Í lánssamningnum var kaupákvæði sem Sparta hefur virkjað og nú eru viðræður í fullum gangi. Frekari tíðinda er að vænta eftir helgi.

Nökkvi fór út í atvinnumennsku haustið 2022, fór út fyrir lok tímabilsins í Bestu deildinni þar sem hann endaði sem markakóngur. Hann lék fyrsta tímabilið erlendis hjá Beerschot í belgísku B-deildinni en fór svo til Bandaríkjanna þar sem hann var í eitt og hálft tímabil áður en hann hélt til Hollands.

Nökkvi kom við sögu í tólf leikjum með Spörtu, í öll skiptin sem varamaður, og skoraði tvö mörk. Þegar Nökkvi kom var liðið í 16. sæti en það endaði í 11. sæti hollensku úrvalsdeildarinnar. Í janúar kom líka landsliðsmaðurinn Kristian Nökkvi Hlynsson í hópinn á láni frá Ajax. Kristian var í stærra hlutverki en Nökkvi.

Samningur hans við St. Louis City á að renna út í lok árs. Samkvæmt Transfermarkt hefur Nökkvi skorað fimm mörk í 44 leikjum fyrir bandaríska liðið.

Dalvíkingurinn verður 26 ára í ágúst. Hann á að baki einn A-landsleik, en sá kom í janúar 2023 gegn Eistlandi.
Athugasemdir
banner