Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 31. maí 2026 13:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kári: Enginn að hrifsa til sín sæti
Eimskip
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Ísland tapaði 1-0 gegn Japan í æfingaleik ytra í dag. Kári Árnason og Bjarni Guðjónsson voru sérfræðingar í settinu á Sýn Sport eftir leikinn.

Það voru nokkrir leikmenn sem fengu sjaldgæft tækifæri í dag en sérfræðingunum fannst þeir ekki grípa það nægilega vel.

Lestu um leikinn: Japan 1 -  0 Ísland

„Það sem er farið að ýta aðeins við manni er hversu flatt íslenska liðið er. Og hversu lítið þessir strákar sem eru að fá tækifæri síðustu þrjá landsleikjaglugga eru að sýna okkur að þeir eigi heima í næsta hóp sem Arnar ætlar að velja," sagði Bjarni.

„Þetta var pínu flatt og líka í leikjunum í Kanada síðast. Það var enginn að hrifsa til sín sæti. Það eru mikil vonbrigði í því að fá sénsinn og menn eru ekki að sýna raunverulega sitt rétta andlit og hvað þeir geta," sagði Kári.

Ísak Snær Þorvaldsson kom inn á undir lokin en Kári hefði viljað sjá hann spila meira. Ísak kom inn á fyrir Kristian Nökkva Hlynsson en hann var of lengi að koma sér af velli og samkvæmt nýjum reglum þurfti Ísland því að vera manni færri í mínútu áður en Ísak kom inn á. Á meðan skoraði Japan eina mark leiksins.

„Ég hefði viljað sjá Ísak koma inn miklu fyrr. Ég held að hann geti raunverulega hjálpað okkur í þessum bolta. Að spila á móti betri liðum sem eru með boltann og pressa okkur vel sem við eigum erfitt með að leysa þurfum við að hafa mann sem gerir varnarmönnum hins liðsins erfitt fyrir. Hann gerir það svo sannarlega," sagði Kári.
Slapp
banner