Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 31. maí 2026 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sterkust í 7. umferð - Var langbest
Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Agla María fagnar marki með Blikum í sumar.
Agla María fagnar marki með Blikum í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Agla María er fyrirliði Blika.
Agla María er fyrirliði Blika.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Agla María Albertsdóttir er sterkasti leikmaður 7. umferðar Bestu deildar kvenna í boði Steypustöðvarinnar. Hún fór hamförum þegar Blikar unnu stórsigur á Grindavík/Njarðvík í Bestu deild kvenna í gær, lokatölur voru 0-5.

Agla María skoraði tvö mörk, hefði hæglega getað skorað þrennu og var bara allt í öllu í sóknarleik Blika.

„Agla María var gjörsamlega frábær í dag, skorar tvö mörk og á stóran þátt í öðru marki Blika þar sem hún átti góða sendingu í gegn," skrifaði Kristján Hrafn Kristjánsson í skýrslu sinni frá leiknum.

Gunnar Berg Stefánsson, blaðamaður Vísis, tók í sama streng.

„Agla María var langbest á vellinum í dag," skrifaði hann.

Agla María hefur verið sterk í upphafi tímabilsins fyrir Breiðablik sem er á toppi Bestu deildarinnar. Ekki er við öðru að búast þar sem hún hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar í svakalega langan tíma núna.

Agla María náði þeim áfanga í upphafi tímabilsins að spila sinn 250. leik fyrir Breiðablik. Þessum áfangi náði hún þrátt fyrir að vera bara 26 ára gömul.

„Ég er búin að vera hér lengi. Það er ótrúlega gaman að fá þessa viðurkenningu, stór áfangi fyrir mig," sagði Agla María um það fyrr á tímabilinu en hún er eins og áður segir einn allra besti leikmaður deildarinnar.
Slapp
banner
banner