31.07.06 - 12:19
Hafliði Breiðfjörð
Einar Guðnason í Víking á ný (Staðfest)

Mynd: www.vikingur.is

Mynd: www.vikingur.is
Einar Guðnason er genginn í raðir Víkinga á ný og fékk leikheimild með þeim í dag. Einar var lánaður til Völsungs í apríl síðastliðnum en snýr nú aftur heim. Hann er framherji sem lék átta leiki með Völsungum í 2. deildinni í sumar og skoraði í þeim fjögur mörk.
Einar er uppalinn Víkingur og spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2002 en samtals hefur Einar spilað 10 leiki á Íslandsmótinu fyrir Víking. Árið 2004 var Einar lánaður til Aftureldingu þar sem hann spilaði 16 leiki og skoraði eitt mark.
Víkingar munu missa tvo leikmenn sína áður en tímabilinu lýkur því Jökull I. Elísabetarson og Rannver Sigurjónsson fara utan í nám. Koma Einars mun því styrkja leikmannahópinn áður en þeir fara.
Félagaskipti dagsins