Fotbolti.net
31.07.06 - 12:27
Hafliði Breiðfjörð

Andri Valur Ívarsson aftur í Val (Staðfest)

Andri Valur í leik með Völsungum.

Andri Valur í leik með Völsungum.

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Andri Valur Ívarsson er kominn til Vals á ný eftir að hafa verið í láni hjá Völsungi á Húsavík undanfarna mánuði. Hann gerði frábæra hluti hjá Völsungum en í þeim sjö leikjum sem hann lék þar skoraði hann fimm mörk.
Áður en hann fór á láni til Völsungs 10. júní síðastliðinn hafði Andri verið ónotaður varamaður í öllum fjórum leikjum Vals á tímabilinu til þess tíma.

Hann lék með Völsungum í fyrstu deildinni í fyrra og skoraði þá sjö mörk í fyrstu deildinni. Eftir að hann sneri til Völsungs í sumar skoraði hann þrennu í fyrsta leik sínum gegn Huginn 10. júní.

Félagaskipti dagsins
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.