31.07.06 - 12:49
Hafliði Breiðfjörð
Ellert Hreinsson kominn aftur í Breiðablik (Staðfest)

Ellert í leik með Breiðablik gegn Víkingi í fyrstu deildinni í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Ellert í leik með Breiðablik gegn Víkingi í fyrstu deildinni í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Framherjinn Ellert Hreinsson er kominn aftur í Breiðablik úr láni frá Víkingi Ólafsvík. Ellert fór til Víkinga 20. maí og lék með þeim tíu leiki og skoraði fjögur mörk. Hann fer nú aftur til Breiðabliks fyrir lokabaráttuna í fyrstu deildinni.
Ellert sem er tvítugur í ár skoraði fjögur mörk í átján leikjum fyrir Blika í fyrstu deildinni í fyrra.
Hann skoraði reyndar tvívegis fyrir Blika gegn Víkingi Ólafsvík í deildabikarnum í vetur en var svo lánaður á milli félaganna í maí. Hann er kominn með leikheimild með Breiðablik og er löglegur í næsta leik.
Ellert hafði ekki verið í leikmannahópi Blika í fyrstu tveimur umferðum Landsbankadeildarinnar áður en hann var lánaður til Víkings.
Félagaskipti dagsins