Fotbolti.net
31.07.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Grétar Örn í Sindra (Staðfest)

Grétar Örn í Sindra (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Sindri úr annarri deild karla hefur fengið kantmanninn Grétar Örn Ómarsson að láni frá Fjarðabyggð út þetta tímabil.
Grétar Örn hefur verið fastamaður í liði Fjarðabyggðar undanfarin ár og í fyrra skoraði hann fimm mörk í 17 leikjum þegar að liðið sigraði aðra deildina. Í ár hefur hann hins vegar ekkert leikið með Fjarðabyggð.

Sindramenn fá góðan liðsstyrk í Grétari en þeir munu missa þá Harald Árna Hróðmarsson og Jón Hauk Haraldsson í næsta mánuði þar sem að þeir eru að fara erlendis til náms.

Sindri er sem stendur í níunda sæti í annarri deildinni með sjö stig, stigi á undan ÍH en þessi lið mætast í næstu umferð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.