31.07.07 - 10:01
Magnús Már Einarsson
Vigfús Arnar Jósepsson í Leikni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Leiknir úr fyrstu deildinni hefur fengið Vigfús Arnar Jósepsson að láni frá KR út tímabilið en þetta staðfesti leikmaðurinn við Fótbolta.net í morgun.
Vigfús Arnar sem verður 23 ára á árinu hefur leikið einn leik með KR í Landsbankadeildinni í sumar en í fyrra lék hann fimmtán leiki með liðinu.
Vigfús er miðjumaður en hann hefur mest leyst bakvarðarstöðuna hjá KR. Hann þekkir vel til hjá Leikni því hann lék með félaginu á sínum yngri árum.
Árin 2004 og 2005 lék Vigfús Arnar með Leikni og var fastamaður hjá liðinu. Leiknismenn mæta Þrótti í fyrstu deildinni í kvöld en Vigfús er orðinn löglegur og verður með liðinu þá.