Fotbolti.net
31.07.07 - 10:08
Magnús Már Einarsson

Ólafur Páll Snorrason kallaður aftur í FH frá Fjölni (Staðfest)

Ólafur Páll Snorrason kallaður aftur í FH frá Fjölni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Íslandsmeistarar FH hafa kallað Ólaf Pál Snorrason til baka úr láni frá Fjölni. Ólafur Páll kom til Fjölnis á láni í lok maí og hefur síðan þá leikið sex leiki í fyrstu deildinni.
Ólafur Páll átti fína spretti með Fjölni en meiðsli settu þó strik í reikninginn og missti hann af nokkrum lekjum.

Fjölnir tekur á móti Stjörnunni í fyrstu deildinni í kvöld en Ólafur Páll mun ekki leika þann leik.

Atli Viðar Björnsson og Heimir Snær Guðmundsson munu hins vegar væntanlega vera áfram hjá Fjölni út tímabilið en þeir komu til féalgsins á láni frá FH á sama tíma og Ólafur Páll.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.