Fotbolti.net
31.07.07 - 10:53
Magnús Már Einarsson

Orri Rúnarsson til KS/Leifturs á láni (Staðfest)

Orri Rúnarsson til KS/Leifturs á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

KS/Leiftur sem er í toppbaráttunni í annarri deild karla hefur fengið Orra Rúnarsson að láni frá Þrótti út þetta tímabil.
Orri er uppalinn hjá Leiftri en hann lék sjö leiki með KS/Leiftri í annarri deildinni í fyrra.

Orri lék áður með Leiftri/Dalvík en fyrr í sumar fór hann til Leiknis R. á láni og lék þar tvo leiki áður en hann fór aftur í Þrótt.

KS/Leiftur sem er í fjórða sæti í annarri deild mætir toppliði Hauka á Siglufirði á morgun en Orri er orðinn löglegur með KS/Leiftri og getur leikið þann leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.