31.07.07 - 13:15
Magnús Már Einarsson
Daníel Einarsson í ÍH (Staðfest)

Daníel Einarsson í leik með Haukum.

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

ÍH úr annari deild hefur fengið varnar og miðjumanninn Daníel Einarsson að láni frá Fram út tímabilið.
Daníel hefur átt við meiðsli að stríða í sumar og eftir að hafa verið á varamannabekk Fram í fyrstu þremur leikjunum hefur hann ekki verið í leikmannahópi liðsins.
Daníel lék sautján leiki með fyrstu deild í Haukum árið 2005 en í fyrra var hann í láni hjá ÍH. Þá skoraði hann níu mörk í fjórtán leikjum og lék vel þegar að ÍH vann sér sæti í annarri deildinni.
ÍH er sem stendur á botninum í annarri deildinni en liðið mætir Sindra sem er í níunda sæti í mikilvægum leik á morgun. Sá leikur fer fram á gervigrasvellinum á Ásvöllum en ekki á frjálsíþróttavellinum í Kaplakrika vegna leiks FH og Bate í Meistaradeildinni.