31.07.07 - 17:43
Magnús Már Einarsson
Boateng til Tottenham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Tottenham hefur keypt miðjumanninn Kevin-Prince Boateng frá Herthu Berlin fyrir óuppgefna upphæð en fjölmiðlar telja að kaupverðið sé 5,4 milljónir punda.
Boateng sem er tvítugur var valinn besti leikmaðurinn í Þýskalandi árið 2006 en Sevilla sýndi honum einnig áhuga.
,,Þú getur borið hann saman við Aaron Lennon og Tom Huddlestone með því að hann er spennandi leikmaður núna og fyrir framtíðina. Hann er framliggjandi miðjumaður, mjög sterkur og það er einn hans helsti styrkur," sagði Martin Jol stjóri Tottenham.
,,Það hefur verið markmið mitt að spila á Englandi, ég er tvítugur núna og ég er við það að upplifa drauminn."
,,Ég veit að Spurs er lið sem að spilar sóknarsinnaðan fótbolta. Félagið vill klifra hærra á næsta tímabili og ég vil vera hluti af því," sagði Boateng.

Heimild: BBC