Fotbolti.net
31.07.07 - 17:48
Magnús Már Einarsson

Davíð Örn til Reynis á láni (Staðfest)

Davíð í leik með Njarðvík fyrr í sumar.

Davíð í leik með Njarðvík fyrr í sumar.

Canon

Mynd: Matthías Ægisson/Leiknir.com

Reynir Sandgerði hefur fengið sóknarmanninn Davíð Örn Hallgrímsson að láni frá Keflavík út tímabilið.
Davíð er ekki ókunnugur hjá Reyni því hann lék tíu leiki með liðinu í annarri deildinni í fyrra þar sem hann var í láni frá Keflavík.

Davíð sem verður 21 árs á árinu var í láni hjá Njarðvík fyrr í sumar þar sem hann lék fjóra leiki í annarri deildinni og einn leik í VISA-bikarnum.

Reynismenn sem eru á botni fyrstu deildarinnar mæta Þór á Akureyri í kvöld en Davíð Örn er ekki löglegur í þeim leik þar sem að félagaskiptin taka ekki gildi fyrr en á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.