Fotbolti.net
31.07.07 - 17:52
Magnús Már Einarsson

Man Utd selur Giuseppe Rossi til Villareal (Staðfest)

Rossi í leik gegn U-21 árs landsliði Íslendinga.

Rossi í leik gegn U-21 árs landsliði Íslendinga.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Manchester United hefur selt framherjann Giuseppe Rossi til spænska félagsins Villareal fyrir óuppgefna upphæð.
Rossi sem er tvítugur á einungis eftir að standast læknisskoðun hjá Villareal en hann hefur samþykkt að gera sex ára samning við félagið.

Rossi var lánaður til Newcastle á síðustu leiktíð og síðan til Parma þar sem hann skoraði níu mörk í 19 leikjum og hjálpaði liðinu að halda sér í Serie A.

Villareal hefur verið í leit að nýjum framherja eftir að Diego Forlan var seldur til Atletico Madrid á fjórtán milljónir punda.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.