31.07.07 - 18:41
Magnús Már Einarsson
Henrik Eggerts til Fram (Staðfest)

Úr leik Fram og Víkings á dögunum.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Úr leik Fram og Víkings á dögunum.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
Danski miðjumaðurinn Henrik Eggerts hefur gengið til liðs við Fram og hefur hann fengið félagskipti líkt og framherjinn Henry Nwosu sem samdi við félagið í síðustu viku.
Henrik sem er 31 árs er sóknarsinnaður miðjumaður en hann lék síðast með Nordsjælland í Danmörku.
Hann hefur einnig leikið með Køge í Danmörku og þá fór hann fyrir nokkrum árum til skoska liðsins Hearts á reynslu.
Bæði Henrik og Henry munu væntanlega leika sinn fyrsta leik með Fram þegar að liðið mætir ÍA í Landsbankadeildinni fimmtudaginn 9.ágúst næstkomandi.