31.07.07 - 19:50
Magnús Már Einarsson
Danskur markvörður til ÍBV (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Jón Örvar Arason

Mynd: Fótbolti.net - Jón Örvar Arason
ÍBV hefur fengið danskan markvörð að nafni Henrik Bødker til liðs við sig. Henrik mun leysa Hrafn Davíðsson af hólmi þegar hann fer til Bandaríkjanna í skóla í næsta mánuði.
Henrik sem er 26 ára gamall var síðast á mála hjá Fremad Amager í heimalandi sínu.
Hann lék einnig fjóra leiki með AGF í dönsku úrvalsdeildinni á sínum tíma auk þess sem hann hefur verið á mála hjá bæði FC Aarhus og Lyngby BK á ferlinum.
Þessi sterki markvörður lék með U-16 , U-17, U-18 og U-20 ára landsliði Dana á sínum tíma en hann hefur þegar fengið leikheimild með Eyjamönnum.