Fotbolti.net
31.07.07 - 18:28
Magnús Már Einarsson

Guðjón Lýðsson til Stjörnunnar (Staðfest)

Guðjón í leik með 2.flokki Hauka í fyrra.

Guðjón í leik með 2.flokki Hauka í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Stjarnan úr fyrstu deild karla hefur fengið miðjumanninn Guðjón Pétur Lýðsson frá Breiðablik en þetta staðfesti Lárus Guðmundsson þjálfari Garðabæjarliðsins við Fótbolta.net nú undir kvöld.
,,Hann er efnilegur leikmaður og þéttir hópinn okkar," sagði Lárus við Fótbolta.net.

Guðjón gekk til liðs við Breiðablik í vor en hann er uppalinn hjá Haukum og lék þrettán leiki með liðinu í fyrstu deildinni í fyrra.

Guðjón sem er tvítugur lék einn leik með Breiðablik í Landsbankadeildinni í sumar en hann er nú genginn til liðs við Stjörnuna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.