31.07.07 - 18:50
Sindri Þór Þorgeirsson
Freddy Adu til Benfica (Staðfest)

Freddy Adu er loksins kominn til Evrópu

Mynd: Getty Images

Freddy Adu er loksins kominn til Evrópu

Mynd: Getty Images
Benfica hafa komist að samkomulagi við Freddy Adu um að hann gangi til liðs við félagið frá bandaríska liðinu Real Salt Lake en áður höfðu þeir samið um verðið á honum við MLS deildina sem er 1,35 milljón punda.
Adu sem varð 18 ára fyrr á árinu á aðeins eftir að standast læknisskoðun hjá klúbbnum en hann æfði með liðinu í dag eftir að samningum var náð milli hans og Benfica en ekki hefur verið gefið upp ennþá hver lengd samningsins er.
Manchester United og Chelsea hafa ásamt Real Madrid og fleiri liðum sýnt kappanum áhuga og fór hann meðal annars til reynslu hjá Manchester United síðasta vetur en hann hefur verið einn eftirsóttasti táningur heims undanfarin ár.
Hann er fyrirliði bandaríska U-20 ára landsliðsins og leiddi það í átta liða úrslit á HM U-20 ára landsliða sem fór fram í Kanada fyrr í þessum mánuði.

Heimild: Heimasíða UEFA