31.07.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Jón Hafsteinn í Völsung (Staðfest)

Mynd: Leiknir.com - Matthías Ægisson

Mynd: Leiknir.com - Matthías Ægisson
Jón Hafsteinn Jóhannsson er genginn aftur til liðs við Völsung eftir tæp þrjú tímabil hjá ÍR.
Jón Hafsteinn er 23 ára miðjumaður en hann hefur spilað 52 meistaraflokksleiki í Íslandsmóti og skorað í þeim 5 mörk.
Hann tryggði ÍR-ingum 1-0 sigur á Fram í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins 2008 en hann skoraði sigurmark leiksins.
Jón Hafsteinn mun væntanlega styrkja lið Völsungs en Húsvíkingar tryggðu sér í gærkvöldi sæti í úrslitakeppni 3.deildar þrátt fyrir að fjórar umferðir séu eftir í riðlakeppninni.