Fotbolti.net
31.07.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Finnbogi Llorens og fleiri í Ými (Staðfest)

Finnbogi Llorens í baráttu við Helga Sigurðsson.

Finnbogi Llorens í baráttu við Helga Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Ýmir hefur fengið varnarmanninn Finnboga Llorens til liðs við sig en hann hefur ekkert leikið með HK í sumar.
Ýmismenn leika í 3.deild og eru dótturfélag HK en liðið er á góðri leið með að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni.

Í gær fékk liðið nokkra leikmenn til liðs við sig og þar á meðal er Finnbogi sem gekk í raðir HK árið 2006 eftir að hafa áður leikið með ÍA.

Bjarni Þór Pálmason, Friðrik Þór Gunnarsson, Hreinn Bergs, Stefán Tandri Halldórsson og Unnar Andri Unnarsson komu allir til Ýmis frá HK í gær.

Þá kom Arnar Þórarinsson til Ýmis frá Víkingi R. og Sigurður Heiðar Höskuldsson frá ÍR.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.