31.07.09 - 09:40
Hafliði Breiðfjörð
Stefán Logi til Lillestrom - Andre Hansen til KR (Staðfest)

Stefán Logi eftir leik KR gegn Basel í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Stefán Logi Magnússon markvörður KR hefur verið lánaður til Lilleström í Noregi og í hans stað kemur Andre Hansen markvörður U21 árs markvörður Noregs í markið hjá KR.
Frá þessu var greint á vef stuðningsmanna KR í dag, KRReykjavik.is. Stefán Logi mun reyndar spila leiki KR gegn Val í bikarnum á sunnudag og svo síðari leikinn gegn Basel í Evrópukeppninni ytra á fimmtudaginn.
Lilleström hefur lengi verið á eftir Stefáni Loga og á vef KR segir að félagið muni væntanlega kaupa hann standi hann undir væntinum.
Norska félagið hefur einnig skoðað Gunnleif Gunnleifsson markvörð HK og íslenska landsliðsins en valdi Stefán Loga.
Andre Hansen hefur komið við sögu í nokkrum leikjum Lilleström í sumar.

Heimild: KRReykjavik.is