Fotbolti.net
31.07.09 - 13:44
Hafliði Breiðfjörð

Igor Pesic til ÍA (Staðfest)

Igor Pesic í leik með ÍA.

Igor Pesic í leik með ÍA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Igor Pesic er genginn í raðir ÍA að nýju en frá þessu var greint á vef ÍA í dag. Pesic mun koma til landsins innan fárra daga en fyrst þarf að ganga frá handavinnu við að fá fyrir hann vegabréfsáritun.
Pesic er 27 ára gamall miðjumaður sem lék með ÍA 2005 og 2006 og skoraði tvö mörk í 23 leikjum, þar á meðal eftirminnilegt mark frá miðju gegn KR á KR-velli.

Hann fór til Fram tímabilið 2007 en hætti á miðju tímabili og fór til heimalandsins.

Á vef ÍA kemur svo fram að ekki sé útlit fyrir að fleiri leikmenn komi til félagsins áður en félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti en Hlynur Hauksson yfirgefur félagið til náms í ágúst.

Heimild: Vefur ÍA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.