31.07.09 - 14:07
Magnús Már Einarsson
Ásgeir Örn Ólafsson aftur í KR (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR-ingar hafa kallað Ásgeir Örn Ólafsson til baka úr láni frá Selfyssingum.
Ásgeir Örn fór til Selfyssinga á láni í vor og hefur leikið alls þrettán leiki með liðinu í sumar í fyrstu deildinni og VISA-bikarnum.
Þessi 21 árs gamli leikmaður hefur hjálpað Selfyssingum í fyrstu deildinni en liðið er með sjö stig forskot á toppnum þar.
Ásgeir Örn kom inn í meistaraflokkslið KR á miðju tímabilið árið 2007 og lék fimm leiki í liðinu.
Í fyrra settu meiðsli strik í reikninginn hjá Ásgeiri en hann lék þrjá leiki í Landsbankadeildinni og einn í Visa-bikarnum.
Síðastliðinn vetur spilaði Ásgeir þónokkuð í miðri vörn KR en eftir komu hollenska varnarmannsins Mark Rutgers fór hann síðan til Selfyssinga á reynslu.