31.07.09 - 14:25
Magnús Már Einarsson
Hermann Aðalgeirsson í Völsung (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Völsungur úr þriðju deild hefur fengið góðan liðsstyrk því að Hermann Aðalgeirsson hefur komið til félagsins á láni frá Fjölni.
Hermann er uppalinn hjá Völsungi en hann lék síðast með liðinu í fyrstu deildinni árið 2005.
Í kjölfarið fór Hermann til Fylkis en hann gekk síðan til liðs við Fjölni síðastliðinn vetur.
Í sumar hefur Hermann leikið sex leiki í Pepsi-deildinni með Fjölni en hann mun núna klára tímabilið með Völsungi.
Völsungur hefur einnig fengið markvörðinn Svavar Sesar Hjaltested á láni frá Víkingi R. en hann er sextán ára gamall.
Völsungur hefur ekki tapað leik í þriðju deildinni í sumar en liðið tryggði sér í gær sæti í úrslitakeppninni þrátt fyrir að ennþá séu fjórar umferðir eftir í riðlakeppninni.