31.07.09 - 23:59
Magnús Már Einarsson
Alfreð Elías Jóhannsson í Stjörnuna (Staðfest)

Mynd: Vilhjálmur Siggeirsson

Mynd: Vilhjálmur Siggeirsson
Stjarnan hefur fengið Alfreð Elías Jóhannsson til liðs við sig frá Víkingi Ólafsvík.
Alfreð Elías hefur í sumar leikið bæði í fremstu víglínu og sem miðvörður hjá Víkingi en hann er að upplagi framherji.
Hjá Stjörnunni mun hann væntanlega leika frammi enda er Ellert Hreinsson á leið í nám í Bandaríkjunum á næstunni.
Í sumar hefur Alfreð skorað tvö mörk í þrettán leikjum í fyrstu deildinni en hann er að leika sitt annað tímabil með Víkingi Ólafsvík.
Áður lék Alfreð með Grindavík, Njarðvík, GG og Sindra en hjá Grindvíkingum lék hann undir stjórn Bjarna Jóhannssonar, núverandi þjálfara Stjörnunnar.
Alfreð ætti að geta leikið sinn fyrsta leik með Stjörnunni þegar að liðið tekur á móti Íslandsmeisturum FH næstkomandi fimmtudag.