31.07.09 - 17:33
Magnús Már Einarsson
Atli Guðjónsson í ÍR (Staðfest)

Atli Guðjónsson (til vinstri).

Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson

ÍR úr fyrstu deild hefur fengið varnarmanninn Atla Guðjónsson frá ÍBV.
Atli, sem er 21 árs gamall, kom til ÍBV fyrir tímabilið eftir að hafa leikið með ÍA undanfarin ár.
Í fyrra lék Atli þrjá leiki í Landsbankadeildinni með ÍA og árið 2007 lék hann einn leik.
Atli, sem er sonur Guðjóns Þórðarsonar, hefur síðan leikið einn leik í Pepsi-deildinni með ÍBV í sumar og einn leik í VISA-bikarnum.
Hann mun núna ganga í raðir ÍR og reyna að hjálpa liðinu í varnarleiknum. ÍR-ingar hafa skorað mikið í 1.deildinni í sumar en jafnframt fengið 32 mörk á sig.