31.07.09 - 19:09
Brynjar Ingi Erluson
Ibra Jagne og Jón Stefán í Magna (Staðfest)

Ibra Jagne er kominn til Magna

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Magni frá Grenivík sem leikur í 2. deild karla hefur fengið til sín Ibra Jagne frá Þór og Jón Stefán Jónsson frá Draupni.
Magni ákvað að styrkja hópinn sinn á lokadegi félagaskiptigluggans og fékk þá til sín þessa tvo sterku leikmenn sem koma til með að styrkja liðið til muna fyrir seinni hluta tímabilsins.
Ibra Jagne, sem er 24 ára gamall framherji hefur verið að leika með Þór undanfarið, en hann hefur lítið spilað þetta sumarið vegna meiðsla og mun hann reynast mikill styrkur fyrir Magna.
Jón Stefán er 27 ára framherji og hefur verið að leika með Draupni í 3. deildinni og staðið sig gríðarlega vel þar, en ásamt því hefur hann leikið með Þór á Akureyri, en þetta staðfesti Þorsteinn Þormóðsson, formaður Magna í samtali við Fótbolta.net í dag.