31.07.11 - 13:19
Elvar Geir Magnússon
Javier Pastore til PSG (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Palermo hefur selt argentínska miðjumanninn Javier Pastore til Paris Saint-Germain í Frakklandi. Maurizio Zamparini, hinn málglaði forseti Palermo, hefur staðfest þetta.
Endanlega verður gengið frá félagaskiptunum á morgun þegar Pastore mætir til Frakklands að undirrita samninginn.
„Ég hefði viljað halda Pastore hjá Palermo en það var ekki annað hægt í stöðunni. Er ég sáttur? Ég er sáttur við upphæðina sem við fáum fyrir hann en það er vont að missa hann sem leikmann. Maður getur ekki fengið allt,\" segir Zamparini.
„Ég er búinn að lofa honum að koma til Parísar og horfa á hann í leik. Það er alltaf góð skemmtun að horfa á hann spila fótbolta. Upphæðin sem við fáum fyrir hann gerir okkur kleyft að styrkja liðið enn frekar.\"
Pastore er 22 ára og kom til Palermo 2009 frá Atlético Huracán í heimalandinu.