Fotbolti.net
31.08.06 - 00:03
Hafliði Breiðfjörð

Jose Molina til Levante (Staðfest)

Jose Molina til Levante (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Jose Molina fyrrum markvörður spænska landsliðsins hefur samþykkt að ganga til liðs við Levante í spænsku deildinni en félagið greindi frá þessu á vefsíðu sinni í kvöld.
Molina sem er 36 ára gamall hætti hjá Deportivo La Coruna í lok síðustu leiktíðar eftir sex ár hjá félaginu. Hann verður kynntur sem nýr leikmaður Levante eftir læknisskoðun.

Molina var í liði Atletico Madrid sem vann deildina og Konungsbikarinn árið 1996 og vann bikarinn svo aftur með Deportivo árið 2002. Levante komust upp í efstu deild á spáni eftir að hafa endað í þriðja sæti annarar deildar á síðustu leiktíð. Þeir töpuðu 4-0 fyrir Sevilla í fyrstu umferð spænsku deildarinnar í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.