31.08.06 - 12:41
Hafliði Breiðfjörð
Steed Malbranque til Tottenham (Staðfest)

Steed Malbranque í leik með Fulham.

Mynd: Getty Images

Steed Malbranque í leik með Fulham.

Mynd: Getty Images
Tottenham staðfestu nú í hádeginu að þeir hafi komist að samkomulagi við Fulham um að fá Steed Malbranque í sínar raðir. Frakkinn spilaði yfir 200 leiki í öllum keppnum fyrir Fulham eftir að hafa verið keyptur frá Lyon árið 2001. Hann skoraði 32 mörk í 160 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
Malbranque kom upp úr unglingastarfi Lyon en hann vann með liðinu frönsku deildina árið 2001. ,,Steed er hæfileikaríkur og fjölhæfur miðjumaður sem hefur mikil gæði," sagði Martin Jol stjóri Tottenham.
,,Hann er leikmaður sem við höfum alltaf dáð og við erum hæstánægðir með að hann hafi komið til okkar þar sem mörg önnur félög höfðu áhuga. Hann er leikmaður sem getur leyst vinstri kantinn, miðjuna og hægri hluta miðjunnar og mun passa vel í liðið okkar."
Malbranque er frá vegna nárameiðsla eins og er en ætti að geta hafið leik með Tottenham eftir um tíu vikur.