31.08.06 - 13:56
Andri Fannar Stefánsson
Dwight Yorke til Sunderland (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fyrsta verk Roy Keane nýráðins stjóra Sunderland var að fá fyrrum liðsfélaga sinn hjá Manchester United, Dwight Yorke frá Sydney FC en kaupverðið er óuppgefið.
Hinn 34 ára gamli Yorke og Keane voru liðsfélagar hjá United þegar liðið vann þrennuna árið 1999 áður en Yorke fór til Blackburn og Birmingham.
Hann var fyrirliði Sydney þegar liðið vann áströlsku deildina í ár og einnig spilaði hann fyrir Trinidad & Tóbago á Heimsmeistaramótinu í Þýskalandi í sumar.
Stjóri sydney og fyrrverandi fyrirliði enska landsliðsins, Terry Butcher sagði að Yorke gæti enn þá staðið sig meðal þeirra bestu en Yorke ferðaðist ekki með liðsfélögum sínum til Melbourne á þriðjudaginn, heldur varð hann eftir í Sydney ef ske kynni að hann þyrfti að gangast undir læknisskoðun eða skrifa undir pappíra.