Fotbolti.net
31.08.06 - 14:31
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Paul Ince til Swindon (Staðfest)

Wise og Ince á sínum tíma með enska landsliðinu

Wise og Ince á sínum tíma með enska landsliðinu

Canon

Mynd: Getty Images

Paul Ince, fyrrum leikmaður Manchester United, Liverpool, Inter og Wolves, hefur gengið til liðs við Swindon Town sem leikmaður og þjálfari.
Þessi 38 ára gamli miðjumaður hittir þar einmitt fyrir Dennis Wise sem er knattspyrnustjóri félagsins og Gustavo Poyet sem er bæði leikmaður og aðstoðarmaður Wise.

,,Ég er mjög ánægður að við gegnum loksins frá samningum við Incey, hann vill spila og líka þjálfa eitthvað. Við erum nánir vinir og hann er hér til að hjálpa mér," sagði Dennis Wise sem lagði skóna á hilluna í sumar.

,,Hann er ekki hér til að taka vinnuna mína, hann er hér til að miðla reynslu sinni ásamt Gus og ég mun taka á móti hugmyndum hans. Hann er leiðtogi og hann færa klúbbnum mikið, bæði á vellinum og utan hans. Öllum hlakkar til að vinna með honum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.