Fotbolti.net
31.08.06 - 16:01
Magnús Már Einarsson

Euell til Middlesbrough (Staðfest)

Euell til Middlesbrough (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Middlesbrough hefur gengið frá kaupunum á Jason Euell miðjumanni Charlton fyrir óuppgefna upphæð en þessi landsliðsmaður frá Jamaíka fór til Teesside í gær til að ganga frá samningum við Boro.
Hinn 29 ára gamli Euell var á sínum tíma markahæsti leikmaður Charlton þrjú tímabil í röð eftir að hann kom frá Wimbledon á 4,75 milljónir punda í júlí 2001. Hann fékk hins vegar ekki tækifæri undir stjórn Iain Dowie sem var ráðinn stjóri Charlton í sumar.

Þá greindi Keith Lamb framkvæmdastjóri Boro frá því á heimasíðu félagsins í dag að Mark Viduka og Stewart Downing verði áfram hjá félaginu en þeir hafa verið orðaðir við Newcastle og Tottenham að undanförnu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.