Fotbolti.net
31.08.06 - 16:11
Hörður Snævar Jónsson

Chris Eagles frá Man Utd til NEC (Staðfest)

Eagles mun ekki leika með United fyrri hlutan af þessu tímabili.

Eagles mun ekki leika með United fyrri hlutan af þessu tímabili.

Canon

Mynd: Getty Images

Chris Eagles leikmaður Manchester United mun eyða næstu fjórum mánuðum eða fram til áramóta á láni hjá Hollenska liðinu NEC Nijmegen. Samherji Eagles hjá Manchester, David Jones eyddi seinni hluta seinasta tímabils hjá liðinu og skoraði sex mörk fyrir liðið.
Eagles var einnig í láni á síðasta tímabili en þá var hann hjá Sheffield Wednesday og Watford þar sem hitti fyrir tvo leikmenn Manchester United þá Ben Foster og Aidi Boothroyd og hjálpaði þeim að komast upp í úrvaldsdeildina.

Hann var einnig hjá Watford tímabilið 2004/2005 í fjóra mánuði. Þetta er annar leikmaðurinn sem United lána núna í lok félagaskiptagluggan því í gær lánuðu þeir Guiseppe Rossi til Newcastle en hann mun einmitt leika hér á landi á morgun með U-21 liði Ítala en leikurinn fer fram á Laugardalsvelli kl 19:00 á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.