Fotbolti.net
31.08.06 - 17:05
Hafliði Breiðfjörð

Krancjar til Portsmouth (Staðfest)

Niko Kranjcar með Króatíu gegn Brasilíu á HM í sumar.

Niko Kranjcar með Króatíu gegn Brasilíu á HM í sumar.

Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth voru rétt í þessu að staðfesta kaup félagins á Niko Kranjcar sem kemur frá Hajduk Split. Kranjcar er 22 ára gamall landsliðsmaður Króatíu. Hann er af mörgum talinn einn efnilegasti leikmaður Króatíu og hefur verið líkt við leikmenn eins og Robert Prosinecki og Zvonimir Boban.
Hann á að baki 24 landsleiki fyrir hönd Króatíu. Hann er jafnfættur og þykir hafa gott auga fyrir markinu og góða tækni.

Portsmouth sendu lækni liðsins til Zagreb í dag þar sem leikmaðurinn fór í læknisskoðun áður en gengið var frá samningum en hann er upptekinn sem stendur í undirbúningi með landsliði Króatíu sem á leiki framundan í EM 2008.

Eftir að hann komst klakklaust í gegnum læknisskoðunina skrifaði hann undir fjögurra ára samning við félagið. Hann mun fá treyju númer 19 hjá Portsmouth.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.