Fotbolti.net
31.08.06 - 17:09
Magnús Már Einarsson

Hólmar Örn strax til Silkeborg (Staðfest)

Hólmar Örn strax til Silkeborg (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Silkeborg hefur komist að samkomulagi við Keflvíkinga um kaupverð á miðjumanninnum Hólmari Erni Rúnarssyni og mun hann halda utan til danska liðsins eftir helgi en þetta kom fram á heimasíðu síðarnefnda félagsins í dag.
Hólmar Örn var með samning við Keflavík út tímabilið og hafði danska félagið greint frá því að það hefði náð samningum um að hann kæmi til félagsins í kringum áramótin.

Silkeborg vildi samt sem áður fá hann strax og hefur félagið átt í viðræðum við Keflvíkinga um kaupverð í langan tíma en þeim viðræðum lauk síðan í dag þegar að félögin náðu samkomulagi.

Hólmar Örn sem hefur leikið alla leiki Keflvíkinga í Landsbankadeildinni í sumar hefur því spilað sinn síðasta leik fyrir félagið í bili en eins og fyrr segir heldur hann til Danmerkur eftir helgi.

Með Silkeborg leikur Hörður Sveinsson fyrrum félagi Hólmars hjá Keflavík og einnig Bjarni Ólafur Eiríksson fyrrum leikmaður Vals.

Heimild: Heimasíða Keflavíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.